Artest: Roy er besti leikmaður sem ég hef mætt 30. apríl 2009 14:26 Brandon Roy keyrir hér framhjá Ron Artest Nordic Photos/Getty Images
Bakvörðurinn ungi Brandon Roy hjá Portland Trailblazers í NBA deildinni fær ekki dónaleg ummæli frá einum besta varnarmanni deildarinnar, Ron Artest hjá Houston Rockets. Artest og félagi hans Shane Battier hjá Houston hafa skipt með sér verkum í að dekka Roy í einvígi liðanna í úrslitakeppninni, þar sem Houston hefur yfir 3-2. Artest og Battier eru tveir af bestu varnarmönnum deildarinnar og annar þeirra er alltaf límdur við Roy þegar hann er inni á vellinum. "Roy er beist leikmaður sem ég hef mætt. Hann er besti skotbakvörðurinn í deildinni. Hann vantar enn nokkuð í land í varnarleiknum, en hann er besti leikmaður sem ég hef spilað á móti," sagði Artest í viðtali á TNT sjónvarpsstöðinni. Hann var spurður að því hvort þetta þýddi að Roy væri betri sóknarmaður en Kobe Bryant og LeBron James. "Hann er sá besti sem ég hef spilað á móti," ansaði Artest. Sjötti leikur liðanna í úrslitakeppninni fer fram í Houston í nótt klukkan 1:30 eftir miðnætti og verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar getur Houston tryggt sér sæti í næstu umferð með sigri. Þá er rétt að minna á að sjötti leikur Chicago og Boston verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 23:00 í kvöld, en þar getur Boston tryggt sig í aðra umferðina með sigri. Orlando getur líka tryggt sig í aðra umferð með sigri á Philadelphia á útivelli, en Orlando er yfir 3-2 í einvíginu. Orlando verður án þeirra Courtney Lee og Dwight Howard í leiknum í kvöld. Howard tekur út leikbann og Lee er meiddur.
NBA Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan - Höttur | Ná Kanalausir Stjörnumenn sigri? Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Sjá meira