Oddvitar allra flokka vilja afnema bankaleynd 14. apríl 2009 20:15 Illugi Gunnarsson oddvit Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður.
Oddvitar allra flokka í Reykjavíkurkjördæmi norður eru sammála um að afnema eigi bankaleynd hér á landi. Þetta kom fram á opnum Borgarafundi sem nú er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Illugi Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna segir þó að hér verði að vera réttarríki. Fulltrúar Frjálslyndaflokksins og Borgarahreyfingarinnar voru á einu máli um að afnema ætti bankaleynd hér á landi. Katrín Jakobsdóttir fulltrúi VG var einnig sammála og sagði að núverandi ríkisstjórn hefði greitt fyrir því. „Eins og Katrín segir þá liggja fyrir heimildir en ég er auk þess þeirrar skoðunar að lengra megi ganga til þess að eyða þeirr tortryggni sem er í samfélaginu," sagði Helgi Hjörvar sem er á fundinum í stað Jóhönnu Sigurðardóttur sem er veik heima. Ástþór Magnússon frá Lýðræðishreyfingunni segir að bankaleynd sé tæki til þess að hylma yfir svindl. „Þessir tuttugu og fimm einstaklingar sem settu Ísland á hausinn eiga að fara strax í fangelsi. Þá fara að opnast ormagryfjur en það verður ekki fyrr en þeir fara í fangelsi," sagði Ástþór. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson oddviti Framsóknarflokksins sagði að ekki mætti aflétta bankaleynd hjá öllum en varðandi rannsóknina sagði hann sjálfsagt að afnema hana.
Kosningar 2009 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira