Innlent

Helga Sigrún hjólar í Siv

Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna.
Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna.
Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti flokksins í Suðvesturkjördæmi. Siv Friðleifsdóttir situr í því sæti og sækist eftir endurkjöri. Prófkjör um efstu sæti á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu fer fram laugardaginn 7. mars. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, sækist einnig eftir fyrsta sætinu.

,,Að vandlega yfirlögðu ráði og fyrir hvatningu og stuðning fjölmargra framsóknarmanna í SV kjördæmi hef ég nú ákveðið að sækjast eftir 1. sæti á lista þeirra í kjördæminu. Byggir sú ákvörðun á eindreginni áskorun grasrótar framsóknarmanna, kalli hennar eftir nýliðun og breytingum á forystu flokksins og er hún jafnframt í samræmi við þær miklu breytingar sem orðið hafa um land allt og einkenna lista framsóknarmanna fyrir komandi alþingiskosningar," segir Helga Sigrún í tilkynningu.

Helga vill bjóða fram krafta sína til að auka lýðræði, vinna að meiri jöfnuði og ekki síst sanngjarnari leikreglum. Með þau gildi að leiðarljósi vil hún leggja sitt af mörkum við endurreisn samfélagsins.

,,Stjórnlagaþing, þar sem stórum spurningum um uppbyggingu stjórnkerfisins er vísað til þjóðarinnar sjálfrar, er grundvallaratriði til að hér náist sátt um þær leikreglur. Íslenskt hagkerfi er miðstýrðara en víðast hvar í vestrænum heimi og bein afskipti stjórnmálaflokka af viðskipta- og atvinnulífi eru óvíða meiri. Hverfa þarf af þeirri braut. Ég vil vinna að því að hér þrífist öflugt atvinnulíf, heilbrigð þjóð og kröftugt velferðarkerfi," segir Helga Sigrún.




Tengdar fréttir

Gefur ekki kost á sér í Suðurkjördæmi

Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, sækist ekki eftir sæta á framboðslista flokksins í kjördæminu. Helga Sigrún hyggst tilkynna um helgina hvort hún gefi kost sér til Alþingis og þá í hvaða kjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×