Formaður Framsóknar inni 24. apríl 2009 05:00
Samfylking er stærsti flokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 33,0 prósent styðja flokkinn í kjördæminu og fengi flokkurinn því þrjá kjördæmakjörna þingmenn. Flokkurinn fékk 29,2 prósent atkvæða í kosningunum 2007. Vinstri græn bæta við sig rúmum níu prósentustigum og segjast 26,2 prósent kjósa flokkinn nú. Vinstri græn myndu samkvæmt því fá 2 kjördæmakjörna þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi jafnmarga þingmenn og Vinstri græn, en 17,9 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú. 36,4 prósent kusu flokkinn í Reykjavík norður í alþingiskosningunum 2007. Formaður Framsóknarflokksins nær kjöri, samkvæmt þessari könnun, þar sem 9,8 prósent styðja flokkinn. Borgarahreyfingin myndi einnig ná manni inn og segjast 8,9 prósent myndu kjósa hreyfinguna. Frjálslyndi flokkurinn og Lýðræðishreyfingin hafa jafnmikið fylgi, 1,9 prósent, en hvorugur flokkur nær kjöri í kjördæminu. Efnahags-, velferðar-, og menntamál eru mikilvægustu málin fyrir kjósendur í Reykjavík norður, en umhverfis- og samgöngumál hafa minnst vægi. Frá kosningunum 2007 hefur mikilvægi efnahags-, Evrópu-, fiskveiði- og velferðarmála aukist. Mikilvægi skattamála stendur í stað, en mikilvægi annarra mála minnkar. Hringt var í 600 manns í Reykjavík norður miðvikudaginn 22. apríl og skiptust svarendur jafnt eftir kyni. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Óákveðnir voru spurðir hvaða lista væri líklegast að þeir myndu kjósa. Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir hvort væri líklegra að þeir myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða annan flokk. 78,3 prósent tóku afstöðu. svanborg@frettabladid.is
Kosningar 2009 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sjá meira