Líf komið í Samuraibréfin eftir að Kaupþing eyðilagði markaðinn 19. janúar 2009 09:18
Líf er að komast að nýju í Samuraibréfamarkaðinn eftir að Kaupþing eyðilagði hann fyrr í vetur með því að láta nokkra flokka af þeim bréfum gjaldfalla á bankann í kjölfar þess að bankinn varð gjaldþrota í haust. Í frétt um málið á Bloomberg-fréttaveitunni segir að enduropnun markaðarins með Samuraibréfin sé á næsta leiti þar sem lánsfjármarkaðurinn í Japan sé að ná stöðugleika á ný og jafnframt að stjórnvöld í Japan ætli að tryggja útgáfu bréfanna. Útgáfa Samuraibréfanna snarminnkaði í kjölfar hruns Lehman Brothers og stöðvaðist algerlega þegar Kaupþing hrundi. Svipað og krónubréf eru Samuraibréfin gefin út í jenum á vegum erlendra fjármálafyrirtækja og síðan seld japönskum fjárfestum. Áður en Kaupþing gerði það að verkum að markaðurinn með bréfin stöðvaðist algerlega s.l. haust stefndi í metútgáfu á bréfunum á síðasta ári en upphæð þeirra náði tæplega 24 milljörðum dollara á árinu. Meðal þeirra sem nú hyggja á útgáfu Samuraibréf eru stórbankinn ANZ í Ástralíu, Westpac, Posco og Commonwealth Bank of Australía.
Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira