Framsóknarmenn styðja ekki frumvarp fjármálaráðherra 5. apríl 2009 18:27
Framsóknarmenn ætla ekki að styðja frumvarp fjármálaráðherra um stofnun sérstaks hlutafélags sem á að taka yfir og endurskipuleggja gjaldþrota fyrirtæki. Þeir segja frumvarpið vera meingallað og auki hættu á spillingu. Sjálfstæðismenn hafa einnig gagnrýnt frumvarpið og með þessari afstöðu framsóknarmanna er ljóst að ekki er meirihluti á Alþingi fyrir frumvarpinu. Frumvarp fjármálaráðherra byggir á starfsáætlun samráðsnefndar um endurreisn fjármálakerfisins. Í því er gert ráð fyrir að ríkið stofni sérstakt eignaumsýslufélag. Félagið mun hafa það hlutverk að kaupa og endurskipuleggja þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem bankarnir hafa tekið yfir vegna greiðsluerfiðleika. Ríkissjóður mun leggja félaginu til 20 milljarða króna en gert er ráð fyrir því að fyrirtækin verði seld að lokinni endurskipulagningu. Aðilar vinnumarkaðarins, þar á meðal Samtök Atvinnulífsins sem og Alþýðusamband Íslands hafa gagnrýnt frumvarpið harðlega og beinlínis vara við því að það verði samþykkt í núverandi mynd. Sérstaklega þykir mönnum hættulegt hversu víðtækar heimildir stjórn félagsins fær til ákveða hvaða fyrirtæki lifa og hver deyja. Þetta auki hættuna á spillingu enda ekki víst að ákvarðanir verði alltaf teknar á faglegum forsendum. Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í samtali við fréttastofu í dag ljóst að Framsóknarflokkurinn muni ekki styðja frumvarpið í núverandi mynd. Önnur umræða um frumvarpið er á dagskrá Alþingis á morgun.
Kosningar 2009 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira