Leikið í VISA-bikar kvenna í kvöld Ómar Þorgeirsson skrifar 7. júlí 2009 12:00 Bikarmeistarar KR. Mynd/E. Stefán
Spennan magnast í VISA-bikar kvenna en í kvöld fara fram athyglisverðir leikir í átta-liða úrslitunum. Boðið verður upp á tvær innbyrðis viðureignir Pepsi-deildarliða þar sem Breiðablik og Þór/KA mætast annars vegar og Stjarnan og KR hins vegar. Þá tekur 1. deildarlið Völsungs á móti Val og 1. deildarlið ÍBv heimsækir Fylki. Bikarmeistarar KR hafa átt erfitt uppdráttar í Pepsi-deildinni í sumar og VISA-bikarinn er nú eini raunhæfi möguleiki liðsins á titli og því verður spennandi að sjá hvernig til tekst gegn toppliði Stjörnunnar, sem hefur verið óárennilegt heim að sækja í sumar og unnið alla leiki sína á Stjörnuvellinum. Stjörnustúlkur unnu ennfremur leik liðanna í deildinni á KR-velli á dögunum nokkuð örugglega og KR-stúlkur því væntanlega í hefndarhug. Breiðablik og Þór/KA mætast í hörkuleik á Kópavogsvelli en liðin hafa unnið hvort sinn leikinn í innbyrðisviðureignum í sumar. Breiðablik vann 6-1 stórsigur á Kópavogsvelli snemma sumars en Þór/KA svaraði með 2-0 sigri á Akureyrarvelli í síðustu umferð Íslandsmótsins. Það má því búast við spennandi leik þegar liðin mætast í kvöld. Íslandsmeistarar Vals ferðast til Húsavíkur og mæta þar 1. deildarliði Völsungs en Hlíðarendaliðið er sem fyrr á toppi Pepsi-deildarinnar og vann sannfærandi sigur á KR í síðustu umferð íslandsmótsins. 1. deildarlið ÍBV heimsækir Fylki á Árbæjarvöll í kvöld en Eyjastúlkur hafa þegar slegið tvö Pepsi-deildarlið úr keppninni, Aftureldingu/Fjölni og GRV. Leikur Völsungs og Vals hefst kl. 18 en hinir leikirnir kl. 19.15. Leikir kvöldins: Völsungur-Valur kl. 18 Breiðablik-Þór/KA kl. 19.15 Stjarnan-KR kl. 19.15 Fylkir-ÍBV kl. 19.15
Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira