Stórsigur KA á Leikni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júní 2008 19:58 Úr leik Stjörnunnar og Leiknis frá því fyrr í sumar. Mynd/Leiknir.com
KA vann í dag 6-0 stórsigur á Leikni frá Reykjavík á sama tíma og þrír aðrir leikir fóru fram í 1. deild karla. Víkingur frá Reykjavík vann 2-1 sigur á Þór á heimavelli og KS/Leiftur vann 3-2 útisigur á Njarðvíkingum. Þá unnu Selfyssingar 4-0 sigur á Víkingi frá Ólafsvík á heimavelli og komu sér þannig í annað sæti deildarinnar. Eftir að ÍBV tapaði í dag fyrir Haukum eru Selfyssingar nú eina taplausa liðið í deildinni en liðið hefur unnið fimm leiki og gert þrjú jafntefli. Liðið er þó þremur stigum á eftir Eyjamönnum. Stjörnumenn koma svo einu stigi á eftir Selfyssingum en þessi lið eru byrjuð að draga sig fram úr hinum liðunum í deildinni. Það stefnir einnig í hörkubaráttu á botni deildarinnar þar sem Njarðvík, KS/Leiftur og Leiknir eru sömuleiðis nokkrum stigum frá öðrum liðum í deildinni. Gunnar Kristjánsson og Brynjar Orri Bjarnason skoruðu mörk Víkinga í dag en Hreinn Hringsson mark Þórsara. Dean Martin og Almarr Ormarsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir KA gegn Leikni í dag og þeir Guðmundur Óli Steingrímsson og Andri Fannar Stefánsson hin tvö. Í leik Njarðvíkur og KS/Leifturs komust heimamenn í 2-0 forystu með mörkum Vignis Benediktssonar og Kristins Arnar Agnarssonar. En þá svaraði KS/Leiftur með þremur mörkum sem Oliver Jäger, Ede Visinka og Þórður Birgisson skoruðu á 22 mínútna kafla í síðari hálfleik.
Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira