Aron: Úrslitakeppnin er markaðsvæn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2008 16:19 Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. Mynd/Anton
Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistari Hauka, var ánægður með að úrslitakeppnin verði tekin upp á nýjan leik á Íslandsmóti karla og kvenna í handbolta. Tillaga þess efnis var samþykkt á ársþingi HSÍ í dag. Fjögur efstu liðin í N1-deildum karla og kvenna taka þátt í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn en ekki átta eins og var síðast þegar úrslitakeppnin var við lýði í handboltanum. Þá er einnig sú nýbreytni að tvö neðstu liðin falla ekki beint í 1. deildina eins og er nú. Neðsta liðið fellur sem fyrr og efsta liðið í 1. deildinni tekur sæti þess í staðinn. Næstneðsta liðið tekur hins vegar þátt í umspilskeppni með liðunum sem urðu í 2., 3. og 4. sæti í 1. deildinni um eitt laust sæti í úrvalsdeildinni. „Úrslitakeppnin er mjög markaðsvæn og þess vegna er þetta af hinu góða," sagði Aron í samtali við Vísi á ársþingi HSÍ í dag. „Mér finnst að það sé hægt að gera handboltanum hærra undir höfði ef það er spenna í deildinni allt tímabilið sem nær svo hámarki í úrslitakeppninni." Hann vill ekki segja að það hafi verið mistök að leggja niður úrslitakeppnina á sínum tíma enda var hann þá staddur í Danmörku. „En ég tel engu að síður að það hefði verið réttara að fækka liðunum sem komast í úrslitakeppnina úr átta í fjögur í stað þess að leggja hana niður." „Það er ljóst að átta liða úrslitakeppni dregur mjög úr vægi deildarkeppninnar en að sama leyti eykur fjögurra liða úrslitakeppni vægi deildarinnar," sagði Aron. „Það má búast við mjög spennandi lokaumferðum í deildinni, bæði í topp- og botnbaráttunni á næstu keppnistímabilum."
Íslenski handboltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira