NBA: Enn tapar Boston á útivelli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2008 09:32 LeBron James bauð upp á troðslu yfir Kevin Garnett, varnarmanni ársins í NBA-deildinni. Nordic Photos / Getty Images
Cleveland náði í nótt að jafna metin í undanúrslitarimmu liðsins við Boston í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í Austurdeildinni. Cleveland vann ellefu stiga sigur, 88-77, þar sem að heimamenn náðu að halda Boston í tólf stigum í fjórða leikhluta. LeBron James hefur ekki náð að hitta vel í rimmunni en hann gerði allt annað fyrir Cleveland í leiknum. Hann skoraði 21 stig og hitti alls úr sjö af 20 skotum sínum utan af velli. En hann var með þrettán stoðsendingar og á síðustu mínútum leiksins átti hann fjórar stoðsendingar, hitti úr þriggja stiga skoti og náði að troða yfir Kevin Garnett, varnarmann ársins í NBA-deildinni, við gríðarlegan fögnuð áhorfenda. Fram að fjórða leikhluta var leikurinn hnífjafn en staðan var 45-43 heimamönnum í vil í hálfleik. Boston náði bestum árangri allra liða í NBA-deildinni á útivelli í deildinni en hafa nú tapað öllum fimm útileikjum sínum í úrslitakeppninni. Nú er staðan 2-2 í rimmunni og verður næsti leikur í heimavelli Boston annað kvöld og sjötti leikurinn í Cleveland á föstudagskvöldið. Kevin Garnett, Ray Allen og Rajon Rondo voru allir með fimmtán stig í leiknum og Paul Pierce var með þrettán stig. James var stigahæstur hjá Cleveland en þeir Wally Szczerbiak og Daniel Gibson voru með fjórtán stig hver.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira