Lifi enn í voninni um að fá Eið í leikinn 23. maí 2008 16:53 Ólafur Jóhannesson Mynd/Martin Sylvest
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari var nokkuð brattur þegar Vísir náði tali af honum nú síðdegis. Hann var þá nýkominn úr aðgerð eftir að hafa slitið hásin í gær. Við spurðum þjálfarann út í mál Eiðs Smára Guðjohnsen, en ólíklegt þykir að hann geti spilað með íslenska landsliðinu gegn Wales á miðvikudaginn. "Eiður er auðvitað okkar besti knattspyrnumaður í augnablikinu og því væri gott að fá hann í leikinn. Ég lifi enn í voninni um að fá hann þó við höfum auðvitað reiknað með því lengi að hann kæmi ekki þar sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða," sagði Ólafur í samtali við Vísi. Hann segist vonast til að fá botn í málið í kvöld eða á morgun. "Þeir hafa samt auðvitað leyfi til að segja nei við okkur. Það er líka verið að spila hérna heima um helgina og í Noregi, þannig að forsendur geta þess vegna verið orðnar allt aðrar með liðið á mánudaginn. Menn geta lent í meiðslum," sagði Ólafur. Ólafur var nýkominn úr aðgerð þegar Vísir náði tali af honum, en hann segir aðgerðina hafa heppnast ágætlega. "Ég vona bara að ég verði sæmilega heill á miðvikudaginn og leikmennirnir líka," sagði Ólafur að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira