Fimm dýrustu bílar í heimi Óli Tynes skrifar 4. febrúar 2008 13:04 Bugatti Royale Kellner Coupé frá 1931 seldist á 565 milljónir króna.
Tímaritið Forbes hefur birt lista yfir fimm dýrustu bíla heimsins. Enginn nýr bíll er á þeim lista, heldur aðeins gamlir eðalvagnar sem hafa selst fyrir metfé á uppboðum. Efstur á þeim lista er Bugatti Royale Kellner Coupé af árgerð 1931. Aðeins voru smíðaðir fimm bílar af þessari gerð og kaupverðið þá var tæpar þrjár milljónir króna. Árið 1987, semsagt fyrir tuttugu árum var hann seldur á uppboði fyrir 565 milljónir króna. Kaupandinn var ónafngreindur Japani. Númer tvö í röðinni er Mercedes-Benz 38/250 SSK frá árinu 1929. Hann var á sínum tíma hraðskreiðasti sportbíll í heimi. Í september árið 2004 var einn slíkur seldur á 480 milljónir króna. Númer þrjú er Bugatti Royale Berliner De Voyager af árgerð 1931. Hann var seldur á uppboði í Nevada árið 1986 fyrir 421 milljón króna. Númer fjögur er Ferrari 330 TRI/LM Testarossa af árgerð 1962. Sá bíll vann Le Mans keppnina árið 1962. Hann var seldur á uppboði árið 2002 fyrir 421 milljón króna, eins og Bugatti bíllinn hér á undan. Númer fimm er svo Ferrari P3 af árgerð 1966. Hann var seldur á uppboði í ágúst árið 2000 fyrir 363 milljónir króna.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fleiri fréttir Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Sjá meira