Launakostnaður KSÍ næststærsti útgjaldaliðurinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. febrúar 2008 20:30
Í dag var gefin út ársreikningur KSÍ og rekstraráætlun fyrir 2008 hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Tveir kostnaðarliðir eru langsamlega stærstir hjá sambandinu. Annars vegar kostnaður vegna A-landsliðs karla og hins vegar launakostnaður KSÍ. Launakostnaður sambandsins nam rúmum 86 milljónum króna fyrir árið 2007. Það er gert ráð fyrir því að sú tala hækki í tæpar 100 milljónir fyrir árið 2008. Samkvæmt því verður launakostnaður KSÍ stærsti útgjaldaliður sambandsins á núverandi ári. Þar að auki var skrifstofu- og nefndarkostnaður fyrir árið tæpar 55 milljónir króna. Gert er ráð fyrir svipaðri upphæð fyrir þetta ár. Alls var því skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 155 milljónir króna. Átján manns eru skráðir starfsmenn hjá KSÍ auk þess sem aðalstjórn sambandsins telur níu manns. En stærsti útgjaldaliðurinn á síðasta ári var A-landslið karla en kostnaður við rekstur þess nam rúmum 90 milljónum króna. Gert er ráð fyrir öðru eins árið 2008. Kostnaður við A-landslið kvenna nam tæpum 26 milljónum á síðasta ári en gert er ráð fyrir að sú upphæð hækki upp í 32 milljónir á þessu ári. Kostnaður við yngri landsliðin nam allt frá átta upp í sautján milljónum króna á hvert landslið. Alls námu rekstrargjöld 508 milljónum en rekstrartekjur 483 milljónir. Þar af komu 239 milljónir í styrkir og framlög og 129 milljónir í tekjum af sjónvarpsrétti. Heildartekjur KSÍ samstæðunnar voru 658,9 milljónir kr. og heildargjöld voru 592,3 milljónir kr. Hagnaður varð því 66,6 milljónir kr. Heildartekjur samstæðunnar voru um 25% umfram áætlun en rekstrargjöldin voru um 13% umfram áætlun.
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira