Körfubolti

Lottomatica Roma byrjar vel í undanúrslitunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með Roma.
Jón Arnór Stefánsson í leik með Roma. Nordic Photos / AFP
Lottomatica Roma vann í kvöld fyrsta leikinn í rimmu liðsins við Air Avellino í undanúrslitum úrslitakeppni ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Rómverjar unnu með fimm stiga mun, 68-63 eftir að hafa verið þremur stigum undir þegar fjórði leikhlutinn hófst.

Jón Arnór Stefánsson lék í þrettán mínútur í leiknum og skoraði þrjú stig en hann hitti úr einu af fimm þriggja stiga skotum sínum í kvöld. Hann tók þar að auki eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

Í hinni undanúrslitarimmunni eigast við deildarmeistarar Montepaschi Siena og Armani J. Milano. Meistararnir unnu fyrsta leikinn, 75-71.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×