Enn einn þjálfarinn rekinn í NBA 13. desember 2008 21:39 Mo Cheeks fékk að gjalda fyrir lélega byrjun Philadelphia í vetur NordicPhotos/GettyImages
Mo Cheeks hjá Philadelphia 76ers varð í kvöld fimmti þjálfarinn sem rekinn er í NBA deildinni á leiktíðinni. Cheeks og félagar í Sixers hafa valdið miklum vonbrigðum í vetur og hefur liðið aðeins unnið níu leiki en tapað fjórtán. Cheeks hafði fengið samning sinn framlengdan í tvígang á síðasta ári, en þolinmæði eigenda í NBA deildinni virðist vera í sögulegu lágmarki þessa dagana. Philadelphia var eitt af spútnikliðunum í NBA deildinni á lokasprettinum á síðustu leiktíð og væntingarnar því miklar í vetur - ekki síst eftir að félagið fékk til sín kraftframherjann öfluga Elton Brand í sumar. Dæmið hefur þó ekki gengið upp enn sem komið er og því fékk Cheeks að taka pokann sinn hjá félaginu sem hann spilaði fyrir um árabil sem leikmaður. Philadelphia tapaði fyrir Cleveland í gærkvöldi og var það áttunda tap liðsins í síðustu tíu leikjum. Það verður aðstoðarframkvæmdastjóri félagsins Tony DiLeo sem tekur við þjálfun Philadelphia þar til eftirmaður Cheeks finnst. Heyrst hefur að Eddie Jordan, sem rekinn var úr þjálfarastólnum hjá Washington Wizards fyrir skömmu, gæti verið í sigtinu hjá Sixers.
NBA Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira