Kvennalið Aftureldingar og Fjölnis sameinuð Elvar Geir Magnússon skrifar 24. nóvember 2008 23:45 Úr leik hjá Aftureldingu síðasta sumar.
Afturelding og Fjölnir hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að félögin munu tefla fram sameiginlegu liði í úrvalsdeild kvenna á næstu leiktíð. Í samningi sem gildir í eitt ár er einnig að sendur verður sameiginlegur 2. flokkur kvenna til leiks. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er aðalþjálfari hins sameinaða liðs. Heimaleikir þess munu bæði verða leiknir á Fjölnisvelli í Grafarvogi og á Varmárvelli í Mosfellsbæ Afturelding endaði í 6. sæti úrvalsdeildarinnar síðasta sumar en lið Fjölnis í 10. sæti og féll því í 1. deild. Fréttatilkynningin : Afturelding og Fjölnir hafa náð samkomulagi um að tefla fram sameiginlegu liði í Landsbankadeild kvenna næsta sumar undir nafninu Afturelding / Fjölnir. Samstarfið er til eins árs í senn og nær til meistara- og 2 flokka félagana. Mikill metnaður er hjá báðum félögum að senda öflugt lið til keppni næsta ár sem mun ekki gefa öðrum liðum neitt eftir í keppni um titla. Til þess hafa liðin ákveðið að nýta hið geysilega öfluga þjálfarateymi Aftureldingar, sem mun leggja höfuð áherslu á að þroska og bæta þann góða efnivið sem félögin búa yfir í dag. Eitt af megin markmiðum félagana er að hagræða í rekstri þar sem miklir óvissutímar eru framundan í efnahagsmálum þjóðarinnar og því betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Því mun félagið ekki sækja leikmenn til að styrkja liðið með gylliboðum sem ekki verður hægt að standa við. Eflaust munu fleiri leikmenn koma til liðsins fyrir komandi keppnistímabil, en það verður á þeim forsendum að viðkomandi leikmenn vilja bæta sig knattspyrnulega í einni bestu umgjörð í kvennaknattspyrnu í dag. Auk fjárhagslegs hagræðis og öflugs þjálfarateymis þá sjá félögin sér hag í stækkun og styrkingu leikmannahópsins. Gert er ráð fyrir að heimaleikir verði leiknir bæði á Fjölnisvelli og Varmárvelli í Mosfellsbæ. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um búninga.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira