Fjölnir í úrslit bikarsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. ágúst 2008 16:10 Fjölnismenn fögnuðu sætum sigri í dag.
Fjölnismenn tryggðu sér í dag sæti í úrslitum bikarkeppni karla eftir sigur á Fylki í undanúrslitum. Leikurinn var afar kaflaskiptur en Gunnar Már Guðmundsson kom Fjölni yfir á sautjándu mínútu. Kjartan Breiðdal jafnaði svo metin á 30. mínútu af mikilli seiglu og sjö mínútum síðar kom Þórir Hannesson Fylkismönnum yfir með skallamarki eftir sendingu Ian Jeffs. En þá kom þriggja mínútna kafli sem Fylkismenn vilja gleyma fljótt. Fyrst skoraði Valur Fannar Gíslason sjálfsmark og svo gaf Þórir boltann beint á Pétur Georg Markan sem var þar með kominn einn gegn Fjalari markverði og skoraði af öryggi. En Fjölnismenn gerðu líka mistök í sínum varnarleik og eftir ein slík náði Ian Jeffs að jafna metin fyrir Árbæinga. Allt stefndi í framlengingu er Tómas Leifsson skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma eftir fyrirgjöf varamannsins Davíðs Þórs Rúnarssonar. Breiðablik og KR mætast í hinni undanúrslitaviðureigninni á Laugardalsvelli annað kvöld klukkan 20. Leiknum var lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins og má lesa lýsinguna með því að smella á leikinn á Miðstöð Boltavaktar Fréttablaðsins og Vísis.
Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira