Leikmenn fyrsta landsliðsins heiðursgestir Elvar Geir Magnússon skrifar 20. júní 2008 12:15 Fyrsti landsliðshópur Íslands í kvennaflokki.
Sérstakir gestir KSÍ á landsleiknum við Slóvena á laugardaginn verða þeir leikmenn er skipuðu fyrsta landsliðshóp Íslands í knattspyrnu kvenna. Fyrsti landsleikurinn var leikinn gegn Skotum ytra og fór fram í Kilmarnock 20. september 1981. Leiknum lauk með sigri Skota, 3-2, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1-0. Íslenska liðið komst svo yfir í seinni hálfleik með mörkum frá Bryndísi Einarsdóttur og Ástu B. Gunnlaugsdóttur en heimamenn tryggðu sér sigur með tveimur mörkum undir lok leiksins. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en til samanburðar má nefna að á þessu ári leikur íslenska kvennalandsliðið amk. 10 landsleiki en fyrstu fimm árin, frá 1981 - 1985, lék A landslið kvenna samtals níu landsleiki. Leikur Íslands og Slóveníu á morgun hefst klukkan 14. Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins, sex stigum á eftir efsta liðinu Frökkum en á tvo leiki til góða. Í þriðja sætinu koma svo Slóvenar sem með sigri á Laugardalsvellinum fara upp fyrir Íslendinga í annað sæti. Það má því búast við hörkuleik þar sem bæði lið munu leika til sigurs. Slóvenar unnu fyrri leik þessara þjóða í riðlinum, 2-1 og eru það einu stigin er íslenska liðið hefur tapað í undankeppninni til þessa. Efsta þjóð riðilsins tryggir sér sæti í úrslitakeppninni í Finnlandi, sem fram fer dagana 23. ágúst - 10. september 2009, en liðið sem hafnar í öðru sæti þarf að leika umspilsleiki um sæti í úrslitakeppninni. Af vefsíðu KSÍ
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Enski boltinn Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Enski boltinn „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Enski boltinn „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Martraðarbyrjun fyrir Frey en Júlíus Mar í draumalandi Fótbolti Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sjá meira