Fjórði þjálfarinn rekinn á sex vikum 8. desember 2008 17:41 Randy Wittman NordicPhotos/GettyImages
Þjálfarinn Randy Wittman var í dag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Minnesota Timberwolves í NBA deildinni. Það verður forsetinn Kevin McHale sem tekur við starfi Wittman tímabundið og tekur sér frí frá skrifstofunni þangað til eftirmaður Wittman finnst. McHale tók tímabundið við liði Minnesota leiktíðina 2004-05 eftir að hann rak Flip Saunders, en hann stýrði liðinu þá til 19 sigra og 12 tapleikja. Wittman er fjórði þjálfarinn á fyrstu sex vikum tímabilsins sem fær að taka pokann sinn, en áður höfðu þeir PJ Carlesimo (Oklahoma), Eddie Jordan (Washington) og Sam Mitchell (Toronto) verið reknir. Mikið má vera ef Wittman verður síðasti þjálfarinn sem rekinn verður fyrir jól, en þeir Marc Ivaroni hjá Memphis og Reggie Theus hjá Sacramento þykja afar líklegir til að fá að taka pokann sinn fljótlega. Af öðrum þjálfurum sem ætla mætti að sætu í volgum stólum má nefna Mo Cheeks hjá Philadelphia. Liði hans var ætlað að verða í toppbaráttu í Austurdeildinni í vetur en hefur aðeins unnið 9 leiki og tapað 12 og situr í tíunda sæti Austurdeildarinnar. Þá er lið LA Clippers í tómu rugli og hefur tapað 16 af 20 fyrstu leikjum sínum og samband Mike Dunleavy þjálfara og leikmanna liðsins sagt hanga á bláþræði.
NBA Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira