Körfubolti

Jón Arnór með sex stig í sigri Rómverja

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma.
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / AFP

Jón Arnór Stefánsson skoraði sex stig þegar að Lottomatica Roma vann La Fortezza Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Rómverjar unnu 21 stigs sigur, 93-72. Jón Arnór lék í sextán mínútur og skoraði báðar körfur sínar utan þriggja stiga línunnar en alls tók hann fjögur slík skot.

Hann gaf einnig tvær stoðsendingar í leiknum.

Lottomatica Roma er í fjórða sæti deildarinnar með ellefu sigurleiki, rétt eins og liðin í 2.-5. sæti. Montepaschi Siena hefur unnið alla leiki sína á tímabilinu til þessa og er langefst á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×