Körfubolti

María Ben spilaði í nótt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
María Ben Erlingsdóttir í leik með Keflavík á síðasta tímabili.
María Ben Erlingsdóttir í leik með Keflavík á síðasta tímabili. Mynd/Vilhelm

María Ben Erlingsdóttir lék með liði sínu í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt í fyrsta sinn eftir að hún meiddist strax í öðrum leik tímabilsins um miðjan nóvember.

Hún lék í sjö mínútur í leiknum og skoraði á þeim tíma tvö stig.

Lið Maríu, UTPA, vann sjö stiga sigur á St. Louis, 69-62. Þetta var áttundi sigur UTPA í fjórtán leikjum og sjöundi sigur liðsins í röð á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×