Bhutto myrt með skothríð og sprengju Óli Tynes skrifar 27. desember 2007 14:15 Frá morðstaðnum í Rawalpindi.
Morðingi Benazir Bhutto, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Pakistan notaði bæði byssu og sprengju til að ráða hana af dögum. Bhutto var að koma af kosningafundi í borginni Rawalpindi þegar hann réðist til atlögu. Sjónvarpsstöð í Pakistan segir að hún hafi verið skotin í höfuðið, en það hefur ekki verið staðfest. Hitt hefur verið staðfest að morðinginn réðist til atlögu með skothríð til þess að komast sem næst henni og vera viss um að drepa hana. Þegar hann var kominn eins langt og hann gat, sprengi hann sprengju sem hann bar innan klæða. Vitni að árásinni sagði við Ruters fréttastofuna að hann hefði heyrt skothvelli og svo gríðarlega sprengingu. Bílar tættust í sundur og líkamshlutar þeyttust langar leiðir. Að minnsta kosti sextán aðrir létu lífið og fjölmargir særðust. Bhutto var flutt á sjúkrahús en var úrskuðuð látin þegar þangað kom. Benazir Bhutto var 54 ára gömul. Hún var aðeins 35 ára þegar hún var kjörin forsætisráðherra Pakistans árið 1988. Hún var fyrsta konan sem var kjörin leiðtogi múslimaríkis.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira