Skynsamlega unnið úr aðstæðum Auðunn Arnórsson skrifar 19. desember 2007 12:43 Á komandi vori mun sveit franskra orrustuþotna taka sér í fyrsta sinn stöðu á Keflavíkurflugvelli og stunda æfingar í íslenzku lofthelginni um nokkurra vikna skeið. Þetta gerist í kjölfar samkomulags sem Ísland hefur gert við Atlantshafsbandalagið um svonefnt lofthelgiseftirlit. Grundvöllurinn fyrir því er annars vegar að sömu staðlar um öryggi skuli gilda í öllu loftrými NATO, en eftir að Ísland varð alveg herlaust land haustið 2006 hefur íslenzka lofthelgin sannarlega skorið sig úr öðrum hlutum loftrýmis NATO með því að eina eftirlitið sem með því var stundað var frá ratsjárstöðvum á jörðu niðri. Hins vegar varð brottför bandaríska herliðsins eftir 65 ára viðveru íslenzkum stjórnvöldum tilefni til að vekja bandalagsþjóðirnar í Evrópu til vitundar um þá breyttu stöðu öryggismála hér á norðvesturjaðri álfunnar. Í beiðni Íslendinga um að NATO-þjóðir legðu til orrustuþotur til lofthelgiseftirlits hérlendis fólst í raun beiðni um að evrópskir bandamenn Íslendinga sýndu í verki áhuga á að taka virkan þátt í að tryggja öryggi Íslands einnig á friðartímum. Það ánægjulega er að ekki stóð á viðbrögðum af hálfu bandamanna okkar. Auk Frakka hafa Norðmenn, Danir, Þjóðverjar, Spánverjar og Pólverjar, auk Bandaríkjamanna og fleiri þjóða sem yfir flugher ráða, lýst áhuga á að taka þátt í lofthelgiseftirlits-áætluninni, en hún felur í sér að flugsveit sé við eftirlit og æfingar á Íslandi í um þriggja vikna skeið í senn, til skiptis um fjórum sinnum á ári að jafnaði. Þetta fyrirkomulag lofthelgiseftirlits hér er mun viðaminna en það sem loftherslausu nýju NATO-ríkin Eistland, Lettland, Litháen og Slóvenía hafa notið síðan þau gengu í bandalagið vorið 2004. Fyrirkomulagið er annars að því leytinu sambærilegt, að kostnaðinn af sjálfri útgerð flugsveitarinnar - laun áhafna, eldsneyti, viðhald o.s.frv. - greiðir útgerðarríkið, en gistiríkið leggur til aðstöðu og hýsir og fæðir mannskapinn. Það er sá kostnaður sem Íslendingar leggja til, auk þess að reka ratsjárkerfið. Andstæðingar NATO-aðildar Íslands hafa gagnrýnt hið fyrirhugaða lofthelgiseftirlit sem óþarfa "hernaðarbrölt". Af því tilefni er full ástæða til að minna á að sú staða Íslands sem fullvalda lýðveldis, að geta látið aðra þjóð algerlega annast hervarnir sínar og það á kostnað hinnar erlendu þjóðar, var sögulegt undantekningarástand. Það er einu sinni svo, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, meðal grunnskyldna stjórnvalda í hverju fullvalda ríki að tryggja varnir þess og öryggi borgaranna fyrir hugsanlegum ógnum. Það sem gerir Íslandi það kleift, án þess að halda úti eigin her, er fyrst og fremst aðildin að varnarbandalaginu NATO. Núverandi ríkisstjórn hefur markað þá stefnu að efla samstarf við önnur NATO-ríki, einkum og sér í lagi grannríkin sem deila ströndum að Norður-Atlantshafi, auk þess að viðhalda varnarsamningnum við Bandaríkin. Hið nýja lofthelgiseftirlit er liður í þessu. Ekki stendur til að stofna íslenskan her, en unnið er að mati á þeim ógnum sem að landinu kunna að steðja, á sjálfstæðum íslenzkum forsendum. Með því, eflingu borgaralegra stofnana sem að öryggi borgaranna koma og boðuðum lögum um varnarmál, er skynsamlega unnið úr snúnum aðstæðum. Ekki er þó vanþörf á að öflug umræða um öryggismál Íslands haldi áfram á næstunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Auðunn Arnórsson Mest lesið Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun