Körfubolti

Lottomatica Roma steinlá í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma í Meistaradeild Evrópu.
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma í Meistaradeild Evrópu. Nordic Photos / AFP

Jón Arnór Stefánsson skoraði fimm stig er Lottomatica Roma tapaði fyrir frönsku meisturunum í Chorale Roanne í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 104-85.

Leikurinn var gríðarlega mikilvægur þar sem bæði lið voru aðeins búin að vinna einn leik fyrir umferð vikunnar.

Roma er nú í næstneðsta sæti riðilsins með einn sigur eftir sjö leiki. Panathinaikos er enn ósigrað í toppsæti riðilsins.

Jón Arnór var í byrjunarliðinu í kvöld og lék í rúmar 30 mínútur. Hann nýtti aðeins eitt ef sex skotum sínum utan af velli og þrjú af fjórum vítatilraunum. Hann tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×