Körfubolti

Jón Arnór stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma.
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / AFP

Jón Arnór Stefánsson skoraði sautján stig fyrir Lottomatica Roma og var stigahæsti leikmaður liðsins er það tapaði í kvöld fyrir Partizan Igokea, 91-86, í Meistaradeild Evrópu í körfubolta.

Rómverjar voru með eins stigs forystu eftir fyrsta leikhluta, 26-25, en síðan tóku Serbarnir völdin og leiddu allt til leiksloka, þótt mjótt hafi verið á munum.

Jón lék í 34 mínútur í kvöld, mest allra í sínu liði, og tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann hitti úr þremur af sex skotum sínum utan af velli og einu af fjórum þriggja stiga skotum sínum. Hann nýtti átta af tíu vítaköstum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×