Gaman í vinnunni Óli Tynes skrifar 14. nóvember 2007 16:35 Bannað.
Það má ekki teikna mynd af krónprinsi Spánar í samförum við eiginkonu sína. Spænskur skopmyndateiknari og textahöfundur hans hafa verið sektaðir um 3000 evrur hvor fyrir það tiltæki. Það eru rúmlega 260 þúsund krónur. Myndin birtist á forsíðu grínblaðs. Tilefnið var að sósíalistastjórn Spánar ætlar að skenkja öllum hjónum landsins 2500 evrur í verðlaun fyrir hvert barn sem þau eignast. Á teikningunni mátti sjá Felipa krónprins í rúminu með krónprinsessunni. Og hann segir við hana; "Veistu, ef þú verður ófrísk þá er þetta það næsta sem ég hef komist því að vinna." Dómarinn sagði að þetta væri argasta móðgun við konungsfjölskylduna og að grínararnir skyldu fara í 10 mánaða stofufanagelsi ef þeir greiddu ekki sektina. Blaðið var innkallað. En það hafði líka verið sett á netið og málaferlin urðu til þess að margfallt fleiri fóru að skoða það en ella. Teiknarinn og textahöfundurinn ætla að áfrýja á grundvelli prent- og tjáningarfrelsis.
Erlent Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira