Bíó og sjónvarp

La Vie en Rose frumsýnd á föstudaginn

MYND/editpaifmovie.com
Græna ljósið frumsýnir á föstudaginn kvikmyndina La vie en rose eftir Olivier Dahan í Regnboganum. Hér er á ferðinni stórbrotin frönsk mynd um litskrúðuga ævi Edith Piaf, sem hefur verið að slá öll met í Frakklandi nýverið og fengið glimrandi dóma gagnrýnenda.

Mögnuð frammistaða Marion Cotillard í titilhlutverkinu hefur uppskorið einróma lof gagnrýnenda, enda hefur henni margsinnis verið spáð Óskarsverðlaunum frá því myndin var frumsýnd í Berlín í febrúar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.