Evrópa verður að herða sig gegn hryðjuverkum Óli Tynes skrifar 6. nóvember 2007 15:53 Franco Frattini, dóms- og öryggismálastjóri ESB.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill að Evrópuríki herði baráttuna gegn hryðjuverkum með því að ráðast á vefsíður öfgasamtaka. Einnig að byrjað verði að afla upplýsinga um flugfarþega, eins og gert er í Bandaríkjunum. Dóms og öryggismálastjóri sambandsins Franco Frattini sagði á fundi með fréttamönnum í dag að hryðjuverkamenn reyndu að gera árásir hvar sem er og hvenær sem er og með þeim hætti sem vekti mesta athygli. "Við getum ekki leitt þetta hjá okkur," sagði Frattini. Hann sagði einnig að stór hluti af árásum og áætlunum hryðjuverkamanna væru unnar í tengslum við öfgasamtök sem notuðu múhameðstrú til þess að fremja glæpi sína. Frattini bætti því við að það væru mikil mistök að halda að einhver trúarbrögð styddu hryðjuverk. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill að aðildarríkin 27 safni 19 liða upplýsingum um flugfarþega. Meðal annars um símanúmer, tölvupóstfang, hvernig greitt er fyrir farið og hver söluaðilinn er. Franco Frattini hvatti einnig þjóðir Evrópu til þess að taka hart á öllum opinberum hvatningum til hryðjuverka og einnig á liðssmölun og upplýsingum um þjálfun. Ekki síst á netinu, sem sé orðið öflugt vopn ódæðismanna.
Erlent Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Fleiri fréttir Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Sjá meira