Jón Arnór magnaður gegn Evrópumeisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. október 2007 22:53 Jón Arnór skoraði 25 stig í kvöld. Nordic Photos / AFP
Jón Arnór Stefánsson var stigahæsti leikmaður Lottomatica Roma gegn Panathinaikos í Euroleague-keppninni í körfubolta í kvöld. Leikið var í Grikklandi þar sem heimamenn fóru með nauman sigur af hólmi, 86-83. Roko-Leni Ukic, leikmaður Roma, hitti reyndar úr þriggja stiga skoti á lokasekúndu leiksins en karfan var dæmd af vegna skrefs. Hefði hún gilt hefði leikurinn verið framlengdur. Jón Arnór skoraði 25 stig, hitti úr sex af fimmtán skotum sínum - þar af fimm þriggja stiga skotum. Hann tók þrjú fráköst, stal boltanum þrisvar og gaf tvær stoðsendingar. Hann var þar að auki stigahæsti leikmaður leiksins. Hann hefur aldrei skorað fleiri stig í leik með Roma og var einn besti maður vallarins. Euroleague-keppninni má líkja við Meistaradeild Evrópu í fótbolta og handbolta en bestu félagslið Evrópu keppa í henni ár hvert. Panathinaikos eru ríkjandi meistarar í keppninni en í vor vann liðið CSKA Moskvu í úrslitaleik í Aþenu, 93-91.
Körfubolti Mest lesið Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ Handbolti Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Enski boltinn „Langar að svara fyrir okkur“ Fótbolti „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ Handbolti Atlético Madríd stal sigrinum í París Fótbolti Aftur skutu Skytturnar púðurskotum á Ítalíu Fótbolti Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Handbolti Vandræði Madríd halda áfram Fótbolti Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur „Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“ Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri Sjá meira