Körfubolti

Jón Arnór með níu stig í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson.

Lottomatica Roma vann í kvöld tólf stiga sigur á Pierrel Capo d'Orlando í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, 84-72.

Jón Arnór Stefánsson lék í 23 mínútur og skoraði níu stig. Hann tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu. Hann nýtti helming skota sinna utan af velli og öll fjögur vítaköst sín.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×