Maddie var á lífi á ströndinni 7. október 2007 09:11 Erfðaefni úr Maddie McCann fannst á strönd í Portúgal.
Einkaspæjari sem McCann-hjónin réðu til að leita að dóttur sinni Madeleine McCann telur sig hafa fundið erfðaefni úr henni á ströndinni nálægt sumarleyfisdvalarstað McCann-fjölskyldunnar í Portúgal. Danie Krugel, fyrrverandi lögga, sem hefur sérhæft sig í að leita að fólki telur að mannræningjar Madeleine McCann hafi farið með hana í gegnum sund, vegi og vegaslóða niður að strönd. Þar hættir slóð þeirra að hans sögn og rennir það stoðum undir þá kenningu að Maddie hafi verið flutt með bát eftir að henni var rænt 3. maí síðastliðinn. McCann-hjónin eru þess fullviss að sönnunargögn Krugels staðfesti að hin fjögurra ára gamla Maddie hafi verið á lífi þegar henni var rænt og enn sé von um að finna hana. Krugel eyddi fjórum dögum í júlí við að rannsaka sumarleyfisdvalarstaðinn og sagði í samtali við breska vikublaðið News of the World að hann hefði fundið slóð Maddie. "Ég teiknaði upp kort og lét lögregluna hafa það. Ég get ekki gefið upp nein smáatriði en nú er það undir lögreglunni komið að rannsaka málið áfram," sagði Krugel. Þrátt fyrir þetta virðist sem portúgalska lögreglan ætli ekki að gera mikið til að vinna úr því hráefni sem Krugel lét þeim í té. Talsmaður McCann-hjónanna lét hafa eftir sér að þau vonuðust til að lögreglan myndi rannsaka gögn Krugels.
Madeleine McCann Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Sjá meira