Gunnar Heiðar á leiðinni til Våleranga Aron Örn Þórarinsson skrifar 28. ágúst 2007 18:25
Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þessa stundina á leiðinni til Noregs þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá úrvalsdeildarliðinu Våleranga í fyrramálið. Ef Gunnar Heiðar stenst skoðunina mun hann skrifa undir tíu mánaða lánssamning við félagið, eða til lok júní. Þetta staðfestir Ólafur Garðarson, umboðsmaður leikmannsins, í samtali við Vísi í dag. Gunnar Heiðar er samningsbundinn þýska liðinu Hannover 96 en hann hefur ekki verið í náðinni hjá þjálfara liðsins, þrátt fyrir að hafa staðið sig mjög vel á undirbúningstímabili liðsins. Gunnar Heiðar skoraði mark Íslands í vináttulandsleiknum gegn Kanada í síðustu viku. „Það voru nokkur lið á eftir Gunnari á Norðurlöndunum og eitt frá Belgíu. Våleranga, sem er eitt stærsta liðið á Norðurlöndunum og tekur þátt í UEFA-keppninni, sýndi Gunnari mestan áhuga" sagði Ólafur. „Strákurinn vill bara spila fótbolta og Hannover vildi ekki selja hann, og því vildi hann fara á lánssamning." Heimildir Vísis herma að Gunnar Heiðar muni ekki lækka í launum fari það svo að leikmaðurinn skrifi undir hjá Våleranga.
Þýski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Fleiri fréttir Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Sjá meira