Tilfinningaþrungin stund föður Madeleine í heimabænum 22. maí 2007 13:10 Gerry McCann gaf sér tíma í stuttri heimsókn að lesa kveðjur velunnara. MYND/AFP
Það var tilfinningaþrungin stund þegar Gerry McCann faðir Madeleine heimsótti torgið í Rothley heimabæ fjölskyldunnar í Leicestershire. Nú eru 19 dagar frá því stúlkan hvarf í sumarleyfisbænum Praia de Luz í Portúgal. Torgið í Rothley er alþakið gulum borðum sem íbúar bæjarins hafa bundið á tré, bekki, umferðarmerki og á grasflötina sjálfa. Gerry er nú kominn aftur til Portúgal. Í Rothley eru auk þess kort og spjöld víða sem hvetja til að stúlkunni verði skilað. Gerry var snortinn þegar hann gekk um og las sum skilaboðanna. Hann sagði við breska blaðið Daily Mail að stuðningur almennings væri mikil hjálp og gæfi fjölskyldunni styrk. Verslunarmenn í bænum hafa lagt til rúmlega 22 km af gulum borðum. Gerry batt sjálfur einn slíkan á bekk næst við hliðina á spjaldi með barnaskrift þar sem stóð; „Maddie. Geriði það, skilið henni." Síðan talaði hann við heimamenn áður en hann hélt á braut. Eini aðilinn sem grunaður er í málinu, Robert Murat, féll í yfirlið fyrir framan fjölskyldu sína í dag vegna álagsins yfir að vera grunaður í málinu. Þetta er í annað sinn sem líður yfir hann frá því hann var yfirheyrður vegna mannránsins. Murat hringdi í fjölmiðlakonginn Max Clifford í London til að biðja um aðstoð hans við að meðhöndla fjölmiðla. Haft er eftir Clifford í Daily Mail að Murat hafi grátbeðið hann um hjálp. Komi í ljós að Murat sé saklaus muni Clifford ræða við hann.
Madeleine McCann Tengdar fréttir Breti grunaður um að hafa rænt Madeleine Portúgalska lögreglan hefur handtekið mann sem grunur leikur á að tengist hvarfinu á Madeleine McCann, fjögurra ára gamalli telpu sem hefur verið saknað í tólf daga. Maðurinn er breskur ríkisborgari og býr hann með móður sinni skammt frá hótelinu sem Madeleine var rænt af. 15. maí 2007 12:15 50 milljónir hafa heimsótt vefsíðu Madeleine Vefsíða sem sett var á laggirnar til að hjálpa við leitina á Madeleine McCann hefur fengið meira en 50 milljónir heimsókna. Fjölþjóðleg fyrirtæki á borð við BP, McDonalds og alþjóðlega matvöruverslunarkeðjan Carrefour styðja leitina með því að dreyfa myndum í Evrópu af stúlkunni. Maddie var rænt í Portúgal 3. Maí síðastliðinn og varð fjögurra ára í síðustu viku. 18. maí 2007 13:18 Murat segir gruninn hafa eyðilagt líf sitt Robert Murat sagði í viðtali við Sky fréttastofuna í kvöld að grunurinn um að hann tengdist mannráni Madeline McCann hefði eyðilagt líf hans. Hann sagðist hafa verið gerður að blóraböggli af lögreglu í málinu. Murat var handtekinn í gær og yfirheyrður í 18 klukkustundir. Hann var látinn laus í dag vegna skorts á sönnunargögnum gegn honum. 15. maí 2007 22:09 Bretanum hefur verið sleppt Portúgalska lögreglan greindi frá því nú síðdegis að ekki væru nægar vísbendingar til að ákæra breskan mann vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn var handtekinn í gærkvöld en hann er búsettur nærri hótelinu í Praia De Luz á Algarve þaðan sem hin fjögurra ára gamla telpan var numin á brott. 15. maí 2007 19:00 Faðir Madeleine aftur til Bretlands Faðir Madeleine litlu sem rænt var í Portúgal í byrjun mánaðarins er nú kominn til Bretlands í stutta heimsókn. Gerry McCann mun nota ferðina til að hitta skipuleggjendur sjóðs vegna leitarinnar að stúlkunni. Þá mun hann undirbúa frekari dvöl í Portúgal og sækja myndir og myndbönd af Maddie til nota fyrir herferðina. 21. maí 2007 10:29 Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum. 16. maí 2007 23:51 Madeleine McCann enn ófundin Enn hefur ekkert spurst til litlu bresku telpunnar sem rænt var á Algarve í Portúgal fyrir viku síðan. Foreldrar hennar segjast enn vongóðir um að hún finnist heil á húfi. 9. maí 2007 18:45 Portúgal: Meiriháttar upplýsingar í rannsókn tilkynntar Sýnt verður beint frá blaðamannafundi Lögreglunnar í Portúgal klukkan 17.30 að íslenskum tíma á visir.is. Búist er við að upplýst verði um meiriháttar umskipti í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Madeleine McCann. Stúlkan var numin á brott af hótelherbergi sínu fyrir viku og hefur leit staðið yfir síðan. Fundurinn fer fyrst fram á portúgölsku og síðan ensku. 10. maí 2007 16:44 Kallað eftir ljósmyndum frá Praia de Luz Breska lögreglan hefur biðlað til almennings um að fá sendar myndir af sumarleyfisstaðnum Praia de Luz og nágrenni í Portúgal. Óskað er eftir myndum á tölvutæku formi frá tveggja vikna tímabili áður en Madeline McCann var rænt þann 3. maí. Helst eru það myndir með ókunnugum í bakgrunni sem lögreglan er á höttunum eftir. 21. maí 2007 16:43 Fara ekki heim fyrr en Maddie er fundin Foreldrar Madeleine McCann, litlu telpunnar sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum, eru viss um að dóttir þeirra sé heil á húfi og ætla ekki að snúa aftur til Bretlands fyrr en hún er komin í leitirnar. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem lofað hafa þeim fé sem varpað geta ljósi á hvarf Madeleine. 14. maí 2007 18:00 Beckham biðlar til mannræningja David Beckham mun í dag biðla til mannræningja hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf í Portúgal í síðustu viku. Eftir æfingu með liði hans Real Madrid á Spáni í dag mun hann taka upp skilaboð segir á fréttavef Sky. 11. maí 2007 09:39 Túlkur í yfirheyrslu vegna hvarfs Madeleine Fréttastofa Sky greindi frá því nú rétt í þessu að maður hefði verið færður til yfirheyrslu á lögreglustöð í Portúgal vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Verið er að leita í húsi sem er stutt þaðan sem hin þriggja ára gamla stúlka hvarf. Maðurinn mun vera túlkur og hafði sagt fólki að hann væri að aðstoða lögregluna við rannsóknina. 14. maí 2007 19:35 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Breti grunaður um að hafa rænt Madeleine Portúgalska lögreglan hefur handtekið mann sem grunur leikur á að tengist hvarfinu á Madeleine McCann, fjögurra ára gamalli telpu sem hefur verið saknað í tólf daga. Maðurinn er breskur ríkisborgari og býr hann með móður sinni skammt frá hótelinu sem Madeleine var rænt af. 15. maí 2007 12:15
50 milljónir hafa heimsótt vefsíðu Madeleine Vefsíða sem sett var á laggirnar til að hjálpa við leitina á Madeleine McCann hefur fengið meira en 50 milljónir heimsókna. Fjölþjóðleg fyrirtæki á borð við BP, McDonalds og alþjóðlega matvöruverslunarkeðjan Carrefour styðja leitina með því að dreyfa myndum í Evrópu af stúlkunni. Maddie var rænt í Portúgal 3. Maí síðastliðinn og varð fjögurra ára í síðustu viku. 18. maí 2007 13:18
Murat segir gruninn hafa eyðilagt líf sitt Robert Murat sagði í viðtali við Sky fréttastofuna í kvöld að grunurinn um að hann tengdist mannráni Madeline McCann hefði eyðilagt líf hans. Hann sagðist hafa verið gerður að blóraböggli af lögreglu í málinu. Murat var handtekinn í gær og yfirheyrður í 18 klukkustundir. Hann var látinn laus í dag vegna skorts á sönnunargögnum gegn honum. 15. maí 2007 22:09
Bretanum hefur verið sleppt Portúgalska lögreglan greindi frá því nú síðdegis að ekki væru nægar vísbendingar til að ákæra breskan mann vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn var handtekinn í gærkvöld en hann er búsettur nærri hótelinu í Praia De Luz á Algarve þaðan sem hin fjögurra ára gamla telpan var numin á brott. 15. maí 2007 19:00
Faðir Madeleine aftur til Bretlands Faðir Madeleine litlu sem rænt var í Portúgal í byrjun mánaðarins er nú kominn til Bretlands í stutta heimsókn. Gerry McCann mun nota ferðina til að hitta skipuleggjendur sjóðs vegna leitarinnar að stúlkunni. Þá mun hann undirbúa frekari dvöl í Portúgal og sækja myndir og myndbönd af Maddie til nota fyrir herferðina. 21. maí 2007 10:29
Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum. 16. maí 2007 23:51
Madeleine McCann enn ófundin Enn hefur ekkert spurst til litlu bresku telpunnar sem rænt var á Algarve í Portúgal fyrir viku síðan. Foreldrar hennar segjast enn vongóðir um að hún finnist heil á húfi. 9. maí 2007 18:45
Portúgal: Meiriháttar upplýsingar í rannsókn tilkynntar Sýnt verður beint frá blaðamannafundi Lögreglunnar í Portúgal klukkan 17.30 að íslenskum tíma á visir.is. Búist er við að upplýst verði um meiriháttar umskipti í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Madeleine McCann. Stúlkan var numin á brott af hótelherbergi sínu fyrir viku og hefur leit staðið yfir síðan. Fundurinn fer fyrst fram á portúgölsku og síðan ensku. 10. maí 2007 16:44
Kallað eftir ljósmyndum frá Praia de Luz Breska lögreglan hefur biðlað til almennings um að fá sendar myndir af sumarleyfisstaðnum Praia de Luz og nágrenni í Portúgal. Óskað er eftir myndum á tölvutæku formi frá tveggja vikna tímabili áður en Madeline McCann var rænt þann 3. maí. Helst eru það myndir með ókunnugum í bakgrunni sem lögreglan er á höttunum eftir. 21. maí 2007 16:43
Fara ekki heim fyrr en Maddie er fundin Foreldrar Madeleine McCann, litlu telpunnar sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum, eru viss um að dóttir þeirra sé heil á húfi og ætla ekki að snúa aftur til Bretlands fyrr en hún er komin í leitirnar. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem lofað hafa þeim fé sem varpað geta ljósi á hvarf Madeleine. 14. maí 2007 18:00
Beckham biðlar til mannræningja David Beckham mun í dag biðla til mannræningja hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf í Portúgal í síðustu viku. Eftir æfingu með liði hans Real Madrid á Spáni í dag mun hann taka upp skilaboð segir á fréttavef Sky. 11. maí 2007 09:39
Túlkur í yfirheyrslu vegna hvarfs Madeleine Fréttastofa Sky greindi frá því nú rétt í þessu að maður hefði verið færður til yfirheyrslu á lögreglustöð í Portúgal vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Verið er að leita í húsi sem er stutt þaðan sem hin þriggja ára gamla stúlka hvarf. Maðurinn mun vera túlkur og hafði sagt fólki að hann væri að aðstoða lögregluna við rannsóknina. 14. maí 2007 19:35
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent