Furðar sig á lóðaúthlutun Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 8. maí 2007 18:50
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands furðar sig á að borgin hafi úthlutað Listaháskóla Íslands lóð í Vatnsmýri sem hefur í átta ár verið merkt Náttúrufræðistofnun á deiliskipulagi. Menntamálaráðherra, borgarstjóri og rektor Listaháskóla Íslands lýstu gleði sinni í gær þegar búið var að undirrita viljayfirlýsingu um að Listaháskóli Íslands fengi ellefu þúsund fermetra lóð í Vatnsmýrinni. Reyndar með þeim óvanalegu skilmálum að skólinn megi selja lóðina og nota andvirðið í aðra lóð - ef önnur betri býðst. Sverrir Kristinsson fasteignasali segir varlega áætlað að lóðin sé um 900 milljóna króna virði. Lóðin er við hlið Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Ottósson forstjóri Náttúrufræðistofnunar finnst gjöf borgarinnar einkennileg. Jón Gunnar segir auðvitað undir borginni komið hvernig hún ráðstafar lóðinni. Enn hefur enginn falast eftir lóðinni, segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands sem í morgun settist í hárskerastólinn á Salon Veh og lét klippa af sér lubbann en hann hafði heitið því að skerða eigi hár sitt fyrr en húsnæðismál skólans væru í höfn. Allar líkur eru því á að Listaháskólinn rísi í Vatnsmýrinni og framkvæmdir hefjist eigi síðar en 2009.
Innlent Mest lesið Ástand mannsins mjög alvarlegt Innlent Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Árásin á Kjalarnesi: Hinir handteknu allir á fimmtugsaldri Innlent Tveir alvarlega særðir eftir stunguárás á Kjalarnesi Innlent Fyrsta barn ársins 2025 komið í heiminn Innlent Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Erlent Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Innlent Árásarmaðurinn skotinn til bana Erlent „Ég lít á það sem skref í átt til jafnréttis“ Innlent „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Innlent Fleiri fréttir Stunguárás, fálkaorður og ískalt nýársbað Ísþoka hrímaði trjágróður á kaldasta stað landsins í dag Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar Eldur í Ártúnsbrekkunni Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Engin umferðarljós og bara tvö hringtorg í Rangárþingi ytra „Ég lít á það sem skref í átt til jafnréttis“ Mengun margfalt yfir heilsuverndarmörkum en varði skemur en óttast var Árásin á Kjalarnesi: Hinir handteknu allir á fimmtugsaldri Stunguárás og álag á bráðamóttöku vegna ofbeldismála Álag vegna ölvunar og ofbeldis og tvö tilfelli vegna flugeldaslysa Auðun hættur hjá K100 eftir átta ár Ástand mannsins mjög alvarlegt Efna til samráðs við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri Fyrsta barn ársins 2025 komið í heiminn Ógnaði fólki nærri Hallgrímskirkju Tveir alvarlega særðir eftir stunguárás á Kjalarnesi Hróshringur formanna: „Það liggur fyrir mér að verða markþjálfi“ „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar Yazan Tamimi er maður ársins Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Fyrsti símafundurinn við utanríkisráðherra Úkraínu Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina Hér eru brennurnar á höfuðborgarsvæðinu Flokkur fólksins dalar eftir kosningar Árið gert upp í Kryddsíld 2024 Varnargarðsmenn maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Breytingar á fylgi stjórnarflokka, norðurljósadýrð og undirbúningur Kryddsíldar Vara við svikapósti í nafni Skattsins Sjá meira