Sarkozy talinn öruggur um sigur 4. maí 2007 18:30 Segolene Royal. MYND/AP
Flest bendir til að Nicolas Sarkozy muni vinna nokkuð öruggan sigur á Segolene Royal í síðari umferð frönsku forsetakosninganna sem fram fer á sunnudaginn. Síðustu skoðanakannanir kosningabaráttunnar sýna að talsvert hefur dregið í sundur með þeim á lokasprettinum. Formlegri kosningabaráttu frambjóðendanna tveggja lýkur í kvöld en frá og með miðnætti er birting skoðanakannana og kosningaáróðurs bönnuð. Þau Nicolas Sarkozy og Segolene Royal reyndu því að nota daginn vel til að ná til kjósenda. Sarko brá sér suður á bóginn og skoðaði stríðsminnismerki í einu af Alpahéruðum Frakklands en Sego heimsótti Bretóna í norðvestrinu. Ef marka má síðustu skoðanakannanir á Royal talsvert á brattann að sækja. Í könnun dagblaðsins Le Monde sem birt var í morgun segjast 53 prósent aðspurðra ætla að kjósa Sarkozy en 47 prósent Royal. Le Figaro metur stöðu Sarkozy enn sterkari, hann fengi 54,4 prósent atkvæða ef kosið yrði nú en Royal 45,5 prósent. Sérfræðingar segja ýmsar skýringar á að forskot Sarkozy hafi aukist, hann virðist til dæmis hafa náð til sín stærri hluta miðjufylgisins. Þótt útlit sé fyrir sigur Sarkozy fer því fjarri að hann sé óumdeildur. Þannig var efnt til mótmæla í París í morgun gegn framboði hans. Franskir kjósendur kveða svo upp sinn dóm á sunnudaginn. Stöð 2 verður þá með beina útsendingu frá París í kvöldfréttatímanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira