Aðrennslisgöngum lokað aftur vegna mengunar 1. maí 2007 12:20
Aðrennslisgöng Kárahnjúka voru opnuð í gærkvöld eftir að þeim var lokað vegna slæmrar mengunar í síðustu viku. Loka þurfti göngunum aftur þar sem mengunin fór upp að viðmiðunarmörkum í gær. Leggja þurfti niður störf á tuttugu metra kafla í göngunum. Vinnueftirlitið lokaði hluta aðrennslisganganna við Kárahnjúka síðastliðinn þriðjudag vegna heilsufarsvandamála sem upp komu í þar síðustu viku. Töluverð mengun var í þeim hluta ganganna sem eftirlitið lét loka vegna dísilvéla sem þar voru notaðar. Hátt í 10 starfsmenn veiktust þar af 7 alvarlega. Starfsmennirnir fengu meðal annars alvarleg asma einkenni og ertingu í öndunarfærum. Þeir eru nú langflestir á batavegi og geta hafið störf innan skamms. Harald Alfreðsson aðstoðarstaðarverkfræðingur hjá Framkvæmdareftirliti Landsvirkjunar segir loftið í göngunum hafa verið að versna síðustu vikur en reynt hafi verið að bæta úr því. Öflugum loftblásurum hafi verið komið fyrir í göngunum sem eigi að hreinsa loftið verulega. Eftir að göngin voru opnuð í gærkvöld fór mengunin aftur upp að viðmiðunarmörkum og þurfti að leggja niður störf á 20 metra kafla. Gert er ráð fyrir að loftræstingu á þeim kafla ljúki í dag og störf geti hafist eftir það.
Innlent Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira