Royal Bank of Scotland býður í ABN Amro 27. apríl 2007 09:45 Eitt útibúa ABN Amro. Mynd/AFP
Spænski bankinn Santander og belgíski bankinn Fortis undir forystu Royal Bank of Scotland hafa staðfest að þeir ætli að gera yfirtökutilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Bankarnir segja tilboð sitt mun betra en það sem breski bankinn Barclays hefur lagt fram. Ekkert hefur verið gefið uppi um fjárhæðina en til tals hefur komið að það geti hlaupið á 72,2 milljörðum evra, rúmlega 6.300 milljörðum íslenskra króna. Þrýsta þeir á stjórn ABN Amro að hún fjalli fljótlega um málið. Til samanburðar hljóðar yfirtökutilboð Barclays 66 milljörðum evra, rétt tæpum 58.000 milljörðum króna. Vilji virðist vera hjá hluthöfum að taka yfirtökutilboði bankanna þriggja en þeir hafa lagt til við stjórnina að hún taki hæsta tilboðinu. Skilyrði fyrir kaupum Barclays á ABN Amro er sú að hollenski bankinn selji LaSalle, banka sinn í Bandaríkjunum. Verði það ekki raunin eru taldar líkur á að Barclays dragi tilboð sitt til baka. Nokkur andstaða er gegn sölunni, sérstaklega hjá hópi hluthafa í ABN Amro sem kallað VEB en hann hefur höfðað mál gegn bankanum til að koma í veg fyrir að salan á LaSalle gangi í gegn.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Viðskipti innlent Nebraska heyrir sögunni til Viðskipti innlent „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Viðskipti innlent Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Viðskipti innlent Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Viðskipti innlent Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Viðskipti innlent Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Sætanýtingin aldrei verið betri í október Viðskipti innlent Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira