Forsætisráðherra Kína í opinbera heimsókn til Japans Jónas Haraldsson skrifar 11. apríl 2007 07:12 Wen Jiabao kom í morgun til Japan. MYND/AFP
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, fer til Japan í dag og er það fyrsta heimsókn kínversks forsætisráðherra til Japans í sjö ár. Heimsóknin er talin merki um að samskipti landanna tveggja séu farin að batna verulega. Á undanförnum árum hafa samskipti landanna verið erfið. Ástæðan er ósætti um hvernig japanskir hermenn hegðuðu sér gagnvart Kínverjum á stríðstímum. Tíðar heimsóknir fyrrum forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, í helgiskrín fallinna hermanna, magnaði þær deilur. Kínverjar töldu að með heimsóknunum væri meðferð Japana á Kínverjum á stríðstímum hampað. Samstarf landanna tveggja vegna kjarnorkudeilunnar við Norður-Kóreu hefur hins vegar bætt samskipti þeirra og hafa þau skipað nefnd til þess að fjalla um sameiginlega sögu þeirra. Talið er að Jiabao og Shinzo Abe, japanski forsætisráðherrann, eigi eftir að ræða um samstarf á sviði orku- og umhverfismála ásamt því að takast á um umdeilt landsvæði þar sem talið er að olíu sé að finna. Einnig er búist við því að Japanir eigi eftir að spyrja Kínverja út í aukin hernaðarleg umsvif þeirra.
Erlent Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Fleiri fréttir Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Sjá meira