15 ára fangelsi fyrir að skrifa Fogh Rasmussen Óli Tynes skrifar 4. apríl 2007 14:00 Anders Fogh Rasmussen með Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra.
Saksóknari í Tyrklandi hefur krafist allt að 15 ára fangelsis yfir 53 borgarstjórum sem skrifuðu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur bréf árið 2005. Í bréfinu báðu þeir Rasmussen um að hlífa kúrdisku sjónvarpsstöðinni Roj-TV sem sendir út á kúrdisku, frá Kaupmannahöfn. Stöðin nær meðal annars til Þýskalands, þar sem býr mikill fjöldi Kúrda. Ástæðan fyrir aðgerðum tyrkneskra yfirvalda er sú að þau telja sjónvarpsstöðina vera handbendi kúrdisku hryðjuverkasamtakanna PKK, sem hafa framið mörg ódæðisverk í Tyrklandi og víðar. Tyrkir hafa afhent dönskum yfirvöldum sönnunargögn sem eru til rannsóknar hjá dönsku lögreglunni. Þegar hann frétti af ákærunni á hendur borgarstjórunum, í fyrra, sagði Anders Fogh Rasmussen að honum væri fyrirmunað að skilja hvernig bréf til hans gæti leitt til slíkrar málsmeðferðar. Það sé alvarlegt að slíkt geti gerst í landi sem hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu. Hann hefur gefið sendiráði Danmerkur í Tyrklandi fyrirmæli um að fylgjast náið með réttarhöldunum.
Erlent Mest lesið Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Erlent Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Erlent Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Erlent Ekkert fordæmi fyrir því að fólk kjósi taktískt í alþingiskosningum Innlent Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Erlent Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Veður Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Reynir tapar minningargreinamáli aftur Innlent Stjórnvöld þurfi að bregðast við alvarlegum vímuefnavanda Innlent Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Erlent Fleiri fréttir Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann Spurning hvort hræðsluáróður eða jákvæðni nái betur til kjósenda Baráttan um Bandaríkin: Hvað gerist eiginlega í nótt? Mikill viðbúnaður vegna ásakana um svindl í lykilsýslu Arizona Dæmdur í fangelsi fyrir kóranbrennur Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Sjá meira