Hráolíubirgðir minnkuðu sjöttu vikuna í röð 21. mars 2007 17:25
Heildarolíubirgðir í Bandaríkjunum jukust á milli vikna. Hráolíubirgðir drógust hins vegar saman meira en greiniendur höfðu gert ráð fyrir, að því er fram kemur í vikulegri skýrslu bandaríska orkumálaráðuneytisins, sem kom út í dag. Samdráttur hráolíubirgðanna oll verðhækkunum á olíu á heimsmarkaði.Heildarolíubirgðir Bandaríkjanna jukust um fjórar milljónir tunna á milli vikna og nema nú 329,3 milljónum tunna. Þetta er talsvert meira en greinendur gerðu ráð fyrir en þeir höfðu spáð því að birgðirnar myndu aukast um 1,4 milljónir tunna.Hráolíubirgðir Bandaríkjamanna minnkuðu á sama tíma um 3,4 milljón tunnur á milli vikna og nema nú 210,5 milljónum tunna. Viðskiptatímaritið BusinessWeek hefur hins vegar eftir greinendum, að þeir hefðu spáð því að birgðirnar myndu minnka um 1,6 milljónir tunna.Þetta er sjötta vikan í röð sem hráolíbirgðir dragast saman í Bandaríkjunum.Verð á hráolíu hækkaði um 45 sent á markaði í Bandaríkjunum í dag og stendur nú í 59,70 bandaríkjadölum á tunnu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira