Handbolti

Lemgo lagði Flensburg í þýska handboltanum

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk og átti stórgóðan leik þegar Lemgo bar sigurorð af Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30. Lemgo var þremur mörkum undir í hálfleik en náði með frábærum leik í síðari hálfleik að snúa leiknum sér í vil. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo vegna meiðsla.

Lemgo komst upp í 7. sæti þýsku deildarinnar eftir sigurinn en Flensburg er með 37 stig í 4. sæti. Kiel, Hamburg og Gummersbach eru í efsta sætinu, öll með 38 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×