Bíó og sjónvarp

Helstu vinningshafar Óskarsverðlaunanna

Verðlaunahafar gærkvöldsins með Óskarinn í hönd. Forest Whitaker, Jennifer Hudson, Helen Mirren og Alan Arkin.
Verðlaunahafar gærkvöldsins með Óskarinn í hönd. Forest Whitaker, Jennifer Hudson, Helen Mirren og Alan Arkin. MYND/Getty Images

Óskarsverðlaunin voru afhent í 79. sinn í gærkvöldi og var verðlaunaafhendingin glæsileg að vanda. Ellen DeGeneres var kynnir hátíðarinnar í ár og þótti standa sig afar vel en þetta var í fyrsta sinn sem hún kynnir hátíðina.

Fyrir verðlaunaafhendinguna var með öllu óljóst hvaða kvikmynd myndi hreppa Óskarinn. Varð það kvikmyndin The Departed sem hlut hnossið að þessu sinni. Leikstjóri myndarinnar, Martin Scorsese, fékk einnig verðlaun fyrir bestu leikstjórn. Var þetta í fimmta sinn sem hann er tilnefndur til Óskarsverðlauna en í fyrsta skipti sem hann hlýtur þau. Besta erlenda myndin var valin þýska myndin Das Leben der Anderen, eða The Lifes of Others.

Breska leikkonan Helen Mirren hlaut verðlaun fyrir besta aðalhlutverk í kvikmyndinni The Queen en þar leikur hún Elísabetu II, Bretlandsdrottningu. Besti aðalleikarinn var valinn Forest Whitaker fyrir hlutverk sitt í The Last King of Scotland.

Jennifer Hudson og Alan Arkin urðu hlutskörpust leikara í aukahlutverki, Jennifer fyrir hlutverk sitt í Dreamgirls og Alan fyrir Little Miss Sunshine.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.