Erótísk tilraunastarfsemi 18. ágúst 2007 04:15 Raphael Sibilla er leikstjóri heimildarmyndarinnar No Body is Perfect.
Heimildarmyndin No Body Is Perfect, sem sýnd er á Bíódögum Græna ljóssins, fjallar um allt það sem fólki dettur í hug að gera við líkama sinn. Erótísk tilraunastarfsemi, miðaldra hjón í makaskiptum, kynsvall, fólk sem lætur festa hanka í bakið á sér svo hægt sé að hengja það upp og margt fleira. Fréttablaðið talaði við Raphael Sibilla, leikstjóra myndarinnar. „Þegar ég byrjaði að vinna að myndinni hugsaði ég ekki mikið um líkamann í þessu öllu saman. Kynferðislegi hlutinn, kynlífið, var það sem ég hélt að væri útgangspunkturinn. Eftir því sem ég kynntist efninu betur komst ég samt að því að kynlíf var ekki aðalatriðið heldur líkaminn. Fólk er ekkert endilega að gera þessa hluti til að fá kynferðislegt kikk út úr því heldur til að finnast það vera meira lifandi," segir Raphael Sibilla, leikstjóri heimildarmyndarinnar No Body is Perfect. Í heimildarmyndinni No Body is Perfect er fjallað um líkamsbreytingar og erótíska tilraunastarfsemi. Myndin fer yfir afar vítt svið líkams- og kynferðislegrar tilraunastarfsemi. Hún fjallar meðal annars um makaskipti miðaldra hjóna, kynsvall, líkamsbreytingar, transgenderisma og „hard-core" masókisma. Fólkið sem talað er við í myndinni er allt frá hversdagslegasta fólki sem gæti búið í næsta húsi við þig upp í fólk sem væri erfitt að stara ekki á úti á götu. Sibilla fór út um allan heim til að tala við fólk og taka upp það sem það gerir í frístundum. Í myndinni eru viðtöl við fólk frá flestum heimshlutum og það sýnt athafna sig. „Ég vissi ekkert um þetta efni þegar ég byrjaði að vinna í myndinni," segir Sibilla. Hann segir framleiðandann að myndinni, Emmanuel Prévost, hafa haft samband við sig og falast eftir því að hann gerði mynd um þetta efni. „Hann hafði stúderað þetta lengi og langaði til að það yrði gerð fordómalaus heimildarmynd um þetta." Sibilla segir það hafa verið erfitt að gera myndina. Bæði tók langan tíma að gera hana og á tímabili leið honum eins og hann ætti ekkert líf utan myndarinnar og væri orðinn allt of tengdur efni hennar. Stór hluti tímans fór í að finna fólk sem var tilbúið til að tala um þetta og svo vinna traust þess og fá að taka myndir. „Ég held að þekkingarleysi mitt á þessu sviði hafi hjálpað mér að vinna traust. Eina ætlun mín var að skoða mannlega þáttinn í þessu, ekki dæma fólkið eða gagnrýna." Í myndinni eru nokkur atriði sem eru ekki fyrir viðkvæmar sálir. Hlutir sem eru utan marka ímyndunarafls margra. Einkum líkamsbreytingarnar. Sibilla segir þó að þær hafi ekki verið erfitt að taka upp. „Myndavélin virkar eins og filter á það sem er að gerast fyrir framan hana og gerir manni kleift að taka upp hvað sem er. Ljósmyndarar sem vinna á stríðssvæðum tala um það sama. Maður finnur ekki sársaukann þegar maður er að taka upp. Hann kemur seinna, þegar maður er að vinna með upptökuna. Þá getur það verið mjög erfitt." No Body is Perfect verður sýnd á Bíódögum Græna ljóssins nú um helgina.
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fleiri fréttir Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira