Eins og þrír erfiðir landsleikir 9. ágúst 2007 01:15
Í dag klukkan 13 mæta Íslandsmeistarar Vals finnska liðinu FC Honka Espoo í fyrstu umferð Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Riðill Vals verður leikinn í Færeyjum og klárast á þriðjudaginn kemur. Valsliðið var komið til Færeyja í fyrrakvöld og að sögn Margrétar Láru Viðarsdóttur, leikmanns liðsins og helsta markaskorara, verður það ekki létt verkefni að komast áfram í aðra umferð en aðeins eitt lið kemst áfram. „Þetta var sennilegasta erfiðasti riðillinn sem við gátum fengið," sagði hún, en ásamt finnska liðinu og heimamönnunum í KÍ frá Klaksvík mætir Valur einnig Hollandsmeisturum Den Haag. „Við verðum að líta á alla þessa leiki sem landsleiki og verðum við að mæta 100% einbeittar til leiks til að eiga möguleika á að komast áfram. Við vitum svo sem lítið um liðin sem við erum að fara að mæta en þekkjum hollenska landsliðið og önnur finnsk lið. Hollensk og finnsk kvennaknattspyrna er á mikilli uppleið og komst finnska landsliðið til að mynda alla leið í undanúrslit á EM í Englandi árið 2005 eftir að hafa í fyrsta sinn komist á stórmót í knattspyrnu." Hún segir það ágætt að mæta finnsku meisturunum strax í fyrsta leik. „Við erum óþreyttar og fínt að byrja þetta á hörkuleik. Þetta er verðugt verkefni en einnig mjög skemmtilegt." Valsstúlkur komu mjög á óvart fyrir tveimur árum er þær unnu sinn riðil í fyrstu umferð Evrópukeppninnar sem þá fór fram í Finnlandi. Margrét Lára segir að nú séu þær ekki lengur vanmetnar. „Við vorum óþekkt stærð þá en íslensk kvennaknattspyrna er ekki lengur vanmetin." Á laugardaginn mætir Valur færeysku meisturunum og svo Den Haag á þriðjudaginn.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira