Bíó og sjónvarp

Allt breytt eftir sigurinn

Sigurinn á Karlovy Vary hefur gjörbreytt öllu skipulagi. Mýrin ætti því að fara víða á þessu ári.
Sigurinn á Karlovy Vary hefur gjörbreytt öllu skipulagi. Mýrin ætti því að fara víða á þessu ári.

„Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu mikil áhrif þessi sigur myndi hafa,“ segir Baltasar Kormákur, leikstjóri Mýrinnar sem hlaut Kristalshnöttinn á Karlovy Vary-kvikmyndahátíðinni í Tékklandi. Þegar Fréttablaðið ræddi við Baltasar vikuna áður en úrslitin voru tilkynnt höfðu borist einhver tugur tilboða um að koma með myndina á kvikmyndahátíðir. Nú væri öldin hins vegar önnur og tilboðunum og hamingjuóskum hreinlega rignir inn.



„Ég hef bara aldrei upplifað annað eins, umfjöllun um sigurinn var á forsíðu Variety og skipulagið okkar er því gjörbreytt,“ útskýrir Baltasar en bætir því hins vegar við að hann ætli að stíga varlega til jarðar. Sigurinn hefur jafnframt mikla þýðingu fyrir Baltasar sem leikstjóra og á borðinu liggja nokkur tilboð um að leikstýra kvikmyndum erlendis og leikstjórinn viðurkennir að honum lítist sérstaklega vel á eitt en vildi ekki gefa upp hvað og hvaðan það væri.



En leikstjórinn liggur alls ekki með tærnar upp í loft og íhugar gylliboð frá útlöndum. Baltasar var ekki fyrr lentur eftir sigur­förina til Tékklands en hann var kominn út í Flatey ásamt leikmyndasmiðum við að undirbúa gamanmyndina Brúðguminn. „Maður verður að nýta tímann á meðan það er svona gott veður,“ sagði Baltasar. Og þá er einnig í farvatninu að leika í kvikmynd Óskars Jónasonar sem hefur verið þekkt undir nafninu S.O.S en hefur nú verið gefið nafnið Reykjavík Rotterdam.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.