Bíó og sjónvarp

Töffari án bílprófs

Vignir Rafn Valþórsson
Vignir Rafn Valþórsson
Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Vignir Rafn Valþórsson sem situr fyrir svörum.

Aldur: 28 ára.

Draumahlutverkið: Fjallkonan 17. júní.

Bókin á náttborðinu: Ævisaga Davíðs Oddssonar og ævisaga Charles Bukowsky.

Hvíta tjaldið eða leiksviðið: Bæði í einu.

Hverjum er það að kenna að þú fórst í leiklist: Kennurunum mínum í menntaskóla fyrir að hafa ekki getað haldið mér yfir bókunum.

Besta æskuminningin: Sitja við skítalækinn í Fossvogsdal að reykja njóla.

Þú sérð gamla konu missa 5.000 kall. Hvað gerir þú? Hleyp á eftir henni með peninginn, að sjálfsögðu.

Sáttur við nýju ríkisstjórnina? Ég er sáttur með að það sé komin ný ríkisstjórn.

Myndir þú koma nakinn fram? Já, ekki spurning.

Þú ert seinn á frumsýningu. Það er rautt ljós en enga löggu að sjá. Hvað gerirðu? Ég keyri yfir, því ég væri hvort sem er að brjóta lögin. Ég er ekki með bílpróf.

Hefur þú kysst einhvern af sama kyni? Já.

Versta starf sem þú hefur unnið? Þegar ég var tvo daga í byggingarvinnu, verst í heimi að sópa ryki ofan í kjallara.

Ef þú værir síamstvíburi, hvern vildirðu helst hafa fastan við þig? Rithöfundinn Hunter S. Thompson.

Ef þú værir einn í heiminum, hvað myndir þú gera? Ætli ég myndi ekki fara á barinn.

Hað þarf mörg hrísgrjón til að mynda hrúgu? Tvö.

Hver er besta vídeóleigan? Krambúðin, hún er svo ódýr.

Hvernig týpa ertu? Góðhjartaður en hrokafullur töffari.

Tengdar fréttir

Hrófatildur í Hyde Park

Breska blaðið Observer greindi frá því í fyrri viku að að fyrirhugaður skáli Ólafs Elíassonar og norska arkitektsins Ketils Thorsen við Serpentine-galleríið í London yrði ekki reistur sökum þess að þeir hefðu ekki staðist skilafrest á teikningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.