Leikverk sem fólk vill sjá 23. júní 2007 12:30 Bjartur Guðmundsson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir. Leikhópurinn OB spjallar við ýmsa hópa í samfélaginu í sumar og vinnur áhugaverð leikverk út frá því.
Tveir leiklistarnemar úr Listaháskóla Íslands skipa OB-leikhópinn sem er einn af þeim hópum sem standa fyrir Skapandi sumarstarfi í sumar. Það er Hitt húsið sem stendur á bakvið hópana eins og fyrri sumur. „Í sumar munum við fara á milli ólíkra hópa og spjalla við þá í viku í senn,“ segir Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir en með henni í OB-leikhópnum er Bjartur Guðmundsson. „Við munum til dæmis heimsækja elliheimili og í þessari viku höfum við verið að spjalla við krakka í unglingavinnunni. Við vinnum svo verk út frá heimsóknunum í von um að takast að gera verk sem fólk vill sjá,“ segir Þorbjörg. „Hugmyndin að þessu verkefni á sér langa sögu. Okkur langaði að vinna þetta í stærri mynd en vorum auðvitað mjög ánægð að fá að starfa við þetta í sumar. Þetta er afskaplega skemmtilegt og gefandi og við þökkum öllum viðmælendum okkar fyrir spjallið.“ Aðspurð um fleiri hópa sem þau munu heimsækja segir hún: „Það er ekki alveg ákveðið en okkur langar mjög mikið að ræða við innflytjendur og heyra hvað þeir hafa að segja. Þetta kemur svo allt í ljós þegar líður á sumarið.“ Hóparnir í Skapandi sumarstörfum sýna vinnu sína og verk á hverjum föstudegi í sumar. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.hitthusid.is.
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira