Nefndin aðhefst ekkert í 365 16. júní 2007 06:30 Baugur er stærsti hluthafinn í 365. Yfirtökunefnd fékk gögn um viðskipti Baugs og Landsbankans í 365.
Yfirtökunefnd hyggst ekkert aðhafast vegna viðskipta Baugs Group á hlutabréfum í 365 hf., útgáfufélagi Fréttablaðsins. „Ég á ekki von á því að við teljum að það þurfi að athuga þetta sérstaklega miðað við þær upplýsingar sem við fengum fyrir og um það leyti sem kaupin voru gerð," segir Viðar Már Matthíasson, formaður nefndarinnar. Baugur, sem átti 31,8 prósenta hlut í 365, keypti 6,6 prósent til viðbótar fyrir 980 milljónir króna og átti þá alls 38,4 prósent í félaginu, sem er nálægt fjörutíu prósenta yfirtökumörkum. Jafnframt á Baugur fimmtungshlut í FL Group sem er meðal stærstu hluthafa í 365. Baugur seldi umrædd bréf til Landsbankans en gerði jafnframt afleiðusamning við bankann þar sem að Baugur græðir eða tapar til samræmis við gengisþróun bréfa í 365. Viðar telur forsenduna að Landsbankinn sé eins og hver annar hluthafi sem geti selt þessi bréf öðrum og farið með atkvæðisrétt á bréfunum. „Það finnst mörgum þetta eitthvað óeðlilegt en svona gerast kaupin á eyrinni. Þetta brýtur ekki í bága við neinar reglur, til dæmis í verðbréfaviðskiptalögunum."
Markaðir Viðskipti Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira