Bíó og sjónvarp

Ocean"s 13 vinsælust

George Clooney, Brad Pitt, Matt Damon og félagar í Ocean´s 13 fóru beint á toppinn með myndina.
George Clooney, Brad Pitt, Matt Damon og félagar í Ocean´s 13 fóru beint á toppinn með myndina.

Framhaldsmyndin Ocean"s 13 var vinsælasta myndin í Banda­ríkjunum um síðustu helgi. Þénaði hún rúmlega 37 milljónir dollara í aðganseyri, jafnvirði rúmlega 2,3 milljarða króna.



Hrifsaði hún toppsætið af Pirates of the Caribbean, sem hafði setið þar í tvær vikur. Í þriðja sæti var gamanmyndin Knocked Up sem er gerð af leikstjóra 40 Year Old Virgin. Mörgæsateiknimyndin Surf"s Up kom þar á eftir. Á meðal þeirra sem tala inn á myndina eru Jeff Bridges og Shia LaBeouf. Hryllingsmyndin Hostel 2, sem var að hluta til tekin upp hérlendis, fór í sjötta sætið sína fyrstu viku á lista.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.