Bíó og sjónvarp

Sjóræningjar og Spartverjar einoka MTV-hátíðina

Jack Sparrow þriðju myndarinnar er að vænta nú í maí.
Jack Sparrow þriðju myndarinnar er að vænta nú í maí.

Stórsmellurinn 300 og sjóræningjarnir á Karíbahafinu berjast um hylli áhorfenda á MTV-kvikmyndaverðlaununum sem afhent verða í Los Angeles. Báðar eru tilnefndar sem besta myndin og keppa þar við Little Miss Sunshine, Blades of Glory og Borat. Tilkynnt hefur verið að Sarah Silverman muni kynna hátíðina, sem verður sýnd í beinni útsendingu í fyrsta sinn.

MTV-hátíðin sker sig nokkuð úr öðrum uppskeruhátíðum enda eru verðlaunaflokkarnir þar nokkuð fjölbreyttari en flestir eiga að venjast. Nægir þar að nefna að verðlaunað er fyrir besta kossinn, besta bardagaatriðið og mesta illmennið en þar berjast gömlu brýnin Jack Nicholson og Meryl Streep um sigurinn.

Johnny Depp og Keira Knightley eru bæði tilnefnd sem bestu leikararnir fyrir frammistöðu sína í sjóræningjamyndinni Pirates of the Caribbean. Þau munu berjast þar við Gerard Butler úr 300, Will Smith í Pursuit of Happyness og Draumastúlkurnar Beyoncé Knowles og Jennifer Hudson. Sasha Baron Cohen verður einnig áberandi en hann er meðal annars tilnefndur sem besti gamanleikarinn fyrir Borat og etur þar kappi við Ben Stiller, Will Ferrell, Adam Sandler og Emily Blunt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.